Inspired by Iceland

71. Vormót Hraunbúa verður haldið í­ Krýsuví­k um hvítasunnuhelgina 10.-13. júní­ nk. og verður þema mótsins “Eldurinn lifir”

venju verður mótið byggt upp á virkri þátttöku skátaflokkanna en boðið verður upp á skemmtilega pósta þar sem kennir ýmissa grasa.

Einnig verður boðið upp á rekka- og róverskátadagskrá, mikinn söng og skemmtun. Allir skátar sem koma á Vormót í­ Krýsuví­k koma til að upplifa, taka þátt, hafa frumkvæði, hitta aðra og umfram allt að njóta þess að vera brosandi með öðrum skátum.

Nánari upplýsingar koma þegar nær dregur.

 

April 29, 2011 | Smári Guðnason.

Stórskátinn Guðmundur Pálsson samdi lag og texta fyrir Vormótið og var hann fenginn til að taka upp lagið. Lagið er nú tilbúið og er hægt að hlusta á það hér fyrir neðan. Texta með gítargripum er hægt að sjá með því að smella á meira.

Lag og texti er eftir Guðmund Pálsson
Söngur: Inga Auðbjörg Kristjánsdóttir
Flutningur: Gunnar Kristinn Björgvinsson

Vormótslagið 2010

(more…)

June 10, 2010 | Smári Guðnason.

Skráning á 70. Vormót Hraunbúa er nú hafin hér á síðunni. Við hvetjum alla til að skrá sig sem fyrst!

Skráningin er hér.

April 30, 2010 | Smári Guðnason.

Almennur þátttakandi: 3500 kr.
Vinnubúðir (Rekka- og Róverskátar): 3500 kr. (hægt að sækja um 50% endurgreiðslu innan tveggja vikna frá mótsslitum)

Fjölskyldubúðir: 2500 kr. per tjald (miðað við 2 fullorðna)
Viðbótargjald fyrir 10 ára og eldri: 1000 kr.
Frítt fyrir 9 ára og yngri.

Innifalið í mótsgjaldi er öll dagskrá, tjaldsvæði, kvöldkaffi 2 kvöld, mótsbók og mótsmerki.

| Smári Guðnason.

70. Vormót Hraunbúa verður haldið helgina 11.-13. júní í Krýsuvík. Nánari upplýsingar síðar.

February 2, 2010 | Smári Guðnason.


Vormót Hraunbúa 2010 is proudly powered by WordPress
XHTML and CSS Valid